Ofurfyrirsætuna og raunveruleikastjörnuna Kendall Jenner þarf vart að kynna til leiks. Hún hefur verið áberandi í tískuheiminum undanfarið þar sem hún þrammar niður tískupallana og situr fyrir á forsíðum allra helstu tískublaðanna. Nú hefur Jenner þó ákveðið að skipta um vettvang og fara bak við myndavélina.
Jenner myndaði Kaiu Gerber, dóttur ofurfyrirsætunnar Cindy Crawford, fyrir nýjasta tölublað Love-tímaritsins. Samkvæmt miðlinum Harper‘s Bazaar sá Jenner um að stílisera myndatökuna sjálf en á myndunum er hin fjórtán ára gamla Gerber afar náttúruleg, lítið máluð og í þægilegum fatnaði.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem fyrirsæta eins og Jenner skellir sér fyrir aftan myndavélina en á dögunum myndaði Brooklyn Beckham, sonur þeirra Victoriu og Davids Beckham, nýjustu auglýsingaherferð Burberry fyrir ilminn Burberry Brit.