Blaðamaðurinn Malín Brand er farin að vinna á vefnum motarsport.is. Malín hefur alla tíð haft mikinn áhuga á farartækjum og þá sérstaklega kraftmiklum farartækjum.
Inni á vef motorsport.is segir frá því að Malín hafi mikla reynslu af fréttamennsku og að hún hafi mikinn bílaáhuga.
„Þegar haft var samband við hana kom mikill áhugi strax í ljós, enda hefur hún bæði fylgst með akstursíþróttum sem og tekið þátt í þeim.
Keppnistímabilinu 2016 er lokið svo ætla mætti að vefurinn legðist í dvala, en sú er ekki ætlunin. Á veturna gerast hlutirnir, keppendur endurbæta bílana eða kaupa nýja. Einnig verður persónum gefinn aukinn gaumur á þessum tíma, viðtöl og söguskoðun.
motorsport.is býður Malín velkomna til starfa og hlakkar til að sjá hvernig fram vindur,“ segir á vef motorsport.is.
Malín starfaði áður hjá Rúv og á Morgunblaðinu.