Í gær bárust fréttir af því að þau Sólveig Káradóttir, dóttir Kára Stefánssonar forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, og Dhani Harrison, sonur bítilsins George Harrison væru að skilja. Miðlar á borð við TMZ og Daily Mail greindu frá því að Dhani hefði sótt um skilnað í seinustu viku eftir fjögurra ára hjónaband.
Dhani og Sólveig gengu í það heilaga árið 2012 og síðan þá hafa þau brallað ýmislegt saman og sótt marga viðburði eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Frétt af mbl.is.is: http: Sólveig Kára og Dhani að skilja