Ung kona að nafni Adina Rivers heldur úti vefsíðunni My Tiny Secrets en þar fjallar hún hispurslaust um kynlíf og allt sem því tengist. „Ég er mitt eigið tilraunadýr,“ segir Adina þar sem hún kynnir sig til leiks en tekur fram að hún sé ekki kennari né vísindamaður heldur hafi einfaldlega brennandi áhuga á kynlífi.
Í nýjum pistli frá henni gefur hún karlmönnum góð ráð um hvernig á að gleðja konur í rúminu en þetta eru svo ráð sem konur geta líka nýtt sér. Þetta eru þau ráð sem Adina vill gefa öllum þeim sem vilja vera „fáránlega góðir“ í rúminu.
1. Mikilvægasta líffæri kvenna í rúminu er ... heilinn!
„Komdu henni til andlega og tilfinningalega og líkaminn mun fylgja á eftir. Nýttu þér ímyndunaraflið til að koma henni til, eftir það tekur þetta líkamlega við,“ segir Adina sem mælir með að klæmast áður en hafist er handa. „Sendu henni kynþokkafull skilaboð, farðu í hlutverkaleik eða skrifaðu erótísk ljóð.“
2. Vísaðu veginn
„Vísaðu veginn í rúminu. Konur eru mun sjálfstæðari í dag en þær voru áður fyrr en þegar þær eru í svefnherberginu vilja þær stundum láta stýra sér. Hún vill að þú stjórnir henni,“ segir Adina. „Leiddu hana í svefnherbergið og sýndu henni hvað hún á að gera,“ útskýrir Adina sem vill að fólk taki áhættu í rúminu í auknum mæli.
3. Gefðu þér tíma
Adina segir konur þurfa ákveðinn tíma til að komast í stuð. Hún bendir á að góður elskhugi viti nákvæmlega hvað kona þarf langan tíma til að verða tilbúin. „Hann skynjar þegar hún er tilbúin að hefjast handa.“
4. Vertu öruggur
Adina segir mikilvægt að einbeita sér að líðandi stund. Ef þú hefur bara áhyggjur af því hvað hún mun segja á morgun eða hvað henni finnst um þig mun hvorugt ykkar njóta þess að sofa saman að sögn Adinu. „Mundu að ef þú ætlast til að hún fylgi þinni leiðsögn þarftu að vera sjálfsöruggur.“
Þessi og fleiri ráð má finna í pistlinum How to Truly Satisfy a Woman: 5 Tips to Become Her Best Lover Everrrrrr!