Berglind Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur og matarbloggari á síðunni Gulur, rauður, grænn og salt, deildi uppskrift að þessari himnesku skál með alls konar gúmmelaði með lesendum sínum. Skálin samanstendur af kjúklingi, sætum kartöflum og kóríanderhrísgrjónum. Uppskriftina rakst hún á á síðunni food52 en breytti henni örlítið þannig að úr varð ofureinfaldur og bragðgóður réttur.
Kjúklingaskál með sætum kartöflum og kóríanderhrísgrjónum
- 2 sætar kartöflur, afhýddar og skornar í bita
- 500 g úrbeinuð kjúklingalæri, t.d. frá Rose Poultry (fást frosin í matvöruverslunum)
- ½ rauðlaukur, gróflega saxaður
- 3 msk. ólífuolía
- 1 tsk. chilíduft
- ½ tsk. paprikukrydd (eða smoked paprikukrydd ef þið eigið)
- ½ tsk. cuminkrydd (ath ekki sama og kúmen)
- ½ tsk. kóríander
- ¾ tsk. salt
- 1 búnt kóríander
- 3 vorlaukar, gróflega saxaðir
- 2 hvítlauksrif
- 4 msk. fersk límóna (frá ca. 2 lime)
- 1 jalapenopipar, gróflega skorinn og fræhreinsaður ef þið viljið hafa minna sterkt
- 1 bolli (185 g) ósoðin hrísgrjón
- 425 ml kjúklingasoð (eða vatn og 2–3 kjúklingateningar)
- 1 dós sýrður rjómi
Aðferð
- Hitið ofninn í 200° C.
- Blandið sætum kartöflum, kjúklingalærum og rauðlauk saman í skál. Blandið saman í minni skál 2 msk. af olíu ásamt chilípowder, paprikukryddi, cumin, kóríanderkryddi og hálfri teskeið af salti. Blandið vel saman. Hellið blöndunni yfir kjúklinginn og grænmetið og blandið þar til allt er vel húðað með olíukryddinu. Setjið í ofnfast mót og bakið í um 35 mínútur eða þar til kartöflurnar eru farnar að mýkjast og kjúklingurinn eldaður í gegn.
- Á meðan kjúklingurinn er að eldast undirbúið hrísgrjónin. Setjið kóríander, vorlauk, hvítlauk, 2 msk. af límónusafa, jalapeno og ¼ tsk. af salti saman í blandara eða matvinnsluvél. Blandið þar til þetta er orðið að mauki.
- Hitið 1 msk. af olíu á pönnu og bætið hrísgrjónum og eldið í um 1 mínútu og hrærið reglulega. Bætið kóríandermaukinu saman við og eldið í aðra mínútu. Bætið því næst kjúklingakrafti og hitið að suðu. Lækkið þá hitann og látið lok á þar til hrísgrjónin eru orðin mjúk og enginn vökvi er eftir, eða í um 20 mínútur.
- Setjið sýrðan rjóma í skál ásamt 2 msk. af límónusafa og blandið vel.
- Þegar kjúklingurinn er fulleldaður takið úr ofni og skerið í litla bita. Skiptið hrísgrjónunum niður á 4 skálar, síðan kjúklingnum og grænmetinu. Toppið með sýrða rjómanum og söxuðu kóríander ef þið eigið afgang.