Það er ekki algengt að fólk sem starfar við sjónvarp stilli sér ófarðað fyrir framan tökuvélarnar. Það gerði söngkonan og The Voice-dómarinn Alicia Keys þó á dögunum.
Söngkonan segist ekki lengur vilja fela sig á bak við farða og hefur því tekið þá ákvörðun að hætta að mála sig.
Söngkonan greindi frá þessu á heimasíðu Lenu Dunham, en hún hefur svo sannarlega staðið við orð sín enda settist hún óförðuð í dómarasætið.
„Ég vil ekki þurfa að fela mig lengur. Ekki andlit mitt, huga minn, sálu mína, drauma mína, baráttu mína og persónulegan þroska. Ekkert.“
Það kom þó svo sannarlega ekki að sök enda er Keys stórglæsileg hvort sem hún er förðuð, eða ekki.