Eftir að stjörnur á borð við Kim Kardashian og Nicki Minaj náðu miklum vinsældum hafa stórir rassar orðið eftirsóttari en áður fyrr. Það virðast allir vilja öðlast stóran og lögulegan rass og fólk er óhætt að leita leiða til að stækka og móta rassinn. En eru rassaæfingar „gúggluðustu“ æfingar ársins? Google veit svarið við því.
Blaðamaður Shape.com gerði samantekt á þeim æfingum sem eru oftast leitaðar uppi á Google. Margir búast kannski við að rassaæfingar séu mest skoðaðar á internetinu en samkvæmt upplýsingum frá Google þá eru rassaæfingar í fjórða sæti yfir þær æfingar sem oftast hefur verið leitað að á árinu 2014.
Í fyrsta sæti eru þá æfingar sem vinna á handleggjunum og mittisæfingar eru svo í þriðja sæti.
Svona lítur þá topp fimm listinn út yfir „gúggluðustu“ æfingarnar.