„Ég hef aldrei séð jákvætt óléttupróf,“ segir YouTube-bloggarinn Emma Sage í myndbandi sem hún birti nýverið. Í myndbandinu geta áhugasamir fylgst með því þegar hún kemst að því að hún er ólétt.
Í myndbandinu lýsir Emma, sem er tvítug, fyrir áhorfendum ferlinu sem tók við eftir að hún tók óléttuprófið. Í fyrstu var talið að um utanlegsfóstur væri að ræða þar sem Emma var með mikla verki en í ljós kom að svo var ekki.