„Að breyta lífsstílnum er langt frá því að vera auðvelt, það koma holur sem maður dettur ofan í en þegar það gerist verður maður bara að koma sér upp úr þeim aftur. Síðustu dagar hafa verið svolítið þannig og þá sérstaklega helgarnar. Það krefst skipulags að breyta lífstílnum og á virkum dögum gengur það fínt enda er rútína þá. Helgarnar hins vegar geta sett allt úr skorðum, þá er ekki vinna eða tími með stelpunum í ræktinni. Það er því nauðsynlegt að skipuleggja helgarnar vel varðandi mat og hreyfingu svo að allir dagar vikunnar séu góðir,“ segir Jóhanna Lúvísa Reynisdóttir sem tekur þátt í Lífsstílsbreytingu Smartlands og Sporthússins í sínum nýjasta pistli:
En þetta er samt ekki spretthlaup heldur langhlaup og tekur allt tíma. Ég er ekki að þessu til þess að losna við fullt af kílóum á stuttum tíma, alls ekki. Heldur til þess að læra á nýjar venjur og tileinka mér lífsstíl sem mun gefa mér meiri orku og betri líðan.
Við fengum aftur að hitta Anítu Sig á miðvikudagskvöldið, það var alveg dásamlegt og kom hún alveg á réttum tíma. Hún er svo fær í að efla mann og peppa mann upp í að halda áfram á þessum vegi sem liggur til betri lífsstíls.