Simone Gately gengur undir nafninu ofurmamman á Instagram þar sem um 26.000 fylgjendur fylgja hverju fótmáli hennar. Ástæðan er einföld. Gately er í ótrúlegu formi miðað við það að hafa á níu árum eignast fimm börn.
Fólk botnar ekkert í því hvernig í ósköpunum hún fer að því að halda sér í formi en í viðtali við Daily Mail gefur hún fólki innsýn í æfingarútínuna. Öll fjölskyldan æfir saman og sameinar hún því samverustundir með börnum og líkamsrækt en hún notar til dæmis elsta barnið sem lóð þegar hún stundar lyftingar. Annars er fyrirkomulagið þannig að hún hefur hvern dag klukkan fimm á því að skokka í klukkustund áður en hún vekur börnin.
Um hádegisbil fer hún í göngutúr með barnavagna, hund og eitt stykki barn á handleggnum. Tvisvar í viku fer hún í líkamsrækt í æfingastöð og passar ávallt upp á mataræðið. Sem sagt ekkert mál!