Það að mæður gefi börnum sínum brjóst eftir tveggja ára aldurinn veldur reglulega mikilli hitaumræðu enda afar skiptar skoðanir um tilgang þess.
Ljósmyndarinn Natalie McCain vildi vekja athygli á því hve eðlileg brjóstagjöf á að vera og tók sig til og myndaði nokkrar mæður með roskin börn sín á brjósti í þeim tilgangi að leggja áherslu á málið. Sitt sýnist hverjum en afrakstur myndanna er fallegur og fangar tilfinningar mæðranna til barnanna sinna.
"„Margir dæma brjóstagjöf án þess að reyna að skilja hana. Ég vona að þessar myndir fái fólk til að átta sig á hversu náttúruleg og eðlileg hún er,“ segir McCain.