Guðjón Valur Sigurðsson er einn af glæsilegri íþróttamönnum okkar Íslendinga enda búinn að vera einn af aðalmönnunum í íslenska handboltalandsliðinu um árabil. Hann sýnir í nýju Instagram-myndbandi hvernig hann æfir vöðvastæltan líkamann.
Um er að ræða plankaæfingu fyrir lengra komna eins og sést á myndbandinu hér að neðan. Hann setur fætur upp á pall og lyftir ketilbjöllu með.