Sveinn Andri auglýsir eftir 2007 húsgögnum á facebook

Sveinn Andri Sveinsson.
Sveinn Andri Sveinsson.

Lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson flutti um helgina í einbýli við Elliðavatn en eitthvað er tómlegt í húsinu því nú auglýsir hann eftir húsgögnum á facebook síðu sinni.

„Ef einhver þarf að láta geyma til lengri tíma öll veggsjónvörpin sín og 2007-húsgögnin þá má hann hafa samband við mig – er í tómu húsi :),“ segir Sveinn Andri á facebook. 

Lögmaðurinn á góða að og eru ýmis tilboð í gangi. Ein vinkona segir: „Heyrðu! Ég á sjónvarp með veggfestingu fyrir þig, nett rautt pínutúbusjónvarp úr Sjónvarpsmarkaðinum. Flott fyrir eldra fólk, mamma var með það a Sóltúni.“

Kristrún Ösp Barkardóttir fyrrverandi kærasta lögmannsins lætur sitt ekki eftir liggja. „Það er þá ágætt að þú sért laus við konuna með rán dýran smekk ;),“segir Kristrún Ösp og bendir á að Góði Hirðirinn sé opinn til klukkan fimm. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál