Óviðjafnanlegir gullkertastjakar

Napulla eru framleiddir af Iittala.
Napulla eru framleiddir af Iittala.

Iittala var ekki lengi að kveikja í fagurkerum um allan heim með nýjustu vöru sinni;  brjálæðislega flottum gullkertastjökum eftir Matti Klenell. 

Kertastjakarnir kallast Nappula og voru kynntir til sögunnar nú í ár en sænski hönnuðurinn Klenell varð fyrir miklum áhrifum þegar hann heimsótti Nuutajärvi-glerlistasafnið í Finnlandi. Þar sá hann afar óvenjulegt borð og heillaðist af formi þess. Í kjölfarið hannaði hann Nappula-kertastjakana.

Kertastjakarnir eru fáanlegir í nokkrum litum en gyllta útgáfan á upp á pallborðið um þessar mundir og setur punktinn yfir i-ið á hvaða hátíðarborði sem er.

Fallegir saman.
Fallegir saman.
Gullútgáfan er sérstaklega hátíðarleg.
Gullútgáfan er sérstaklega hátíðarleg.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál