Eitt það allra vinsælsta í innanhúshönnun þessa dagana er klárlega kopar.
Húsgögn og stofustáss í koparlit hafa tröllriðið öllu í tímaritum og á bloggum sem fjalla um heimili og hönnun og að sama skapi hafa verslanir landsins fyllst af fallegum munum í koparlit.
Cooper Shade, eitt eftirsóknaverðasta loftljós seinni ára, er einmitt úr kopar og kemur úr smiðju Tom Dixon.
Copper Shade frá Tom Dixon er vinsælt um þessar mundir.
Þetta loftljós kemur einnig frá Tom Dixon.
Þessir flottu vasar fást í vefversluninni Snúran, þeir kosta 3.300 krónur.
Þetta svala ljós er úr Habitat. Það kostar 17.500 krónur.
Ilmkerti frá Jonathan Adler. Það fæst í Módern og kostar 7.900 krónur.
Sæt kopar krukka úr Epal. Krukkan er úr smiðju Georg Jensen. 17.900 krónur.
Klukka úr Epal. Hönnuðurinn er Georg Jensen. 25.500 krónur.
Jón í lit eftir Almar Alfreðsson. Þetta stofustáss er selt í Mýrinni.
Þessi kertastjaki er frá Bloomingville.