Heimili leikkonunnar Michelle Williams er til sölu hjá fasteignasölunni Brown Harris Stevens fyrir 911 milljónir króna, hvorki meira né minna. Um glæsilega fjögurra hæða íbúð í New York er að ræða.
Samkvæmt heimasíðu fasteignasölunnar er fjögurra metra lofthæð í íbúðinni, innbyggt hljóðkerfi og eldstæði svo eitthvað sé nefnt. Á þaki íbúðarinnar er að finna glæsilegan garð þar sem hægt er að baða sig í sólinni. Íbúðin hefur einnig að geyma vínkjallara, sex svefnherbergi og fimm baðherbergi.
Á heimasíðu fasteignasölunnar BHS má lesa nánar um íbúðina og skoða fleiri myndir.