Michael Douglas og fyrrverandi eiginkona hans, Diandra Luker, hafa sett glæsilegt sumarhús sitt á sölu. Þau vilja fá um 7,7 milljarða króna fyrir húsið.
Douglas og Luker voru gift frá árinu 1977 til ársins 2000. Þau keyptu sér húsið, sem er á vesturströnd Mallorca, saman á sínum tíma og hafa deilt því síðan þau skildu. Douglas hefur það frá janúar til júní og Luker hefur húsið sem eftir er árs.
Nú virðast þau vera tilbúin til að sleppa húsinu og hafa sett það á sölu. Húsið er stórt og veglegt en það hefur að geyma 11 svefnherbergi, hvorki meira né minna.