Leikkonan Leighton Meester hefur sett huggulegt heimili sitt á sölu en hún vill fá tæpar 318 milljónir króna fyrir húsið.
Meester keypti húsið, sem er í Kaliforníu, árið 2011. Húsið er stórt og stæðilegt en það hefur að geyma fjögur svefnherbergi, fimm baðherbergi, nokkur eldstæði, tæknilegt öryggiskerfi, fataherbergi og sundlaug svo eitthvað sé nefnt.
Húsið er ekki aðeins flott heldur einnig lóðin sem umlykur það. Á heimasíðu The Variety má finna nánari upplýsingar og fleiri myndir.
Meester gekk í það heilaga fyrir tæpu ári og ætlar nú eflaust að flytja inn til eiginmanns síns, leikarans Adams Brodys.