Björk selur húsið á Þingvöllum

Stofan er einstök.
Stofan er einstök.

Björk Guðmundsdóttir hefur sett sumarbústað sinn á Þingvöllum á sölu. Bústaðurinn er í Svínahlíð í landi Heiðarbæjar í Bláskógarbyggð. Bústaðinn keypti hún 27. nóvember 2002 og stendur hann á besta stað á þessu svæði. 

Bústaðurinn var byggður 1965 og eru innviðir hússins ósnortnir og fær andi þess tíma að ríkja í bústaðnum. Í eldhúsinu er til að mynda smekkleg hvít innrétting með tekki eins og tíðkaðist á þeim tíma sem húsið er byggt. 

Sjálft sumarhúsið er 94,3 fm að stærð ásamt 5,6 fm geymslu og svo fylgir bátaskýli með bústaðnum en það er 18,4 fm. 

Að innan er bústaðurinn málaður í grænum tónum og smekkleg húsgögn prýða hann. HÉR er hægt að skoða bústaðinn nánar á fasteignavef mbl.is. 

Eldhúsinnréttingin er upprunaleg frá 1965 þegar húsið var byggt.
Eldhúsinnréttingin er upprunaleg frá 1965 þegar húsið var byggt.
Bústaðurinn er reisulegur að utan.
Bústaðurinn er reisulegur að utan.
Húsið stendur við besta stað Þingvallavatns.
Húsið stendur við besta stað Þingvallavatns.
Sófi úr Habitat sómir sér vel í stofunni.
Sófi úr Habitat sómir sér vel í stofunni.
Það fer ekki mikið fyrir húsinu að utan.
Það fer ekki mikið fyrir húsinu að utan.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál