Fregnir herma að hjónin Jay Z og Beyonce hafi nýverið fest kaup á þessari gömlu kirkju í New Orleans.
Samkvæmt heimildum Zillow keyptu hjónin þessa 1200 fermetra kirkju ekki alls fyrir löngu og borguðu 344 milljónir krónur fyrir hana, sem er líklegast hálfgert klink í þeirra augum. Þau eru sögð stefna á að flytja inn í hana þegar hún hefur verið innréttuð upp á nýtt.
Ef slúðrið reynist satt þá munu leikarinn Matthew McConaughey verða nýi nágranninn þeirra.