Það eru litlu hlutirnir sem skipta svo miklu máli þegar raðað er inn í rými. Plöntur, sætir smámunir, góð lýsing og fallegir litir setja punktinn yfir i-ið.
Hérna kemur listi yfir fallega muni sem myndi hressa upp á hvaða rými sem er. Þetta liggur allt í smáatriðunum.
Púði úr Fakó, 6.800 krónur. Hressir upp á sófann.
Rétta lýsingin skiptir öllu máli. Þessi lampi gefur frá sér kósý birtu. Hann kemur Snúrunni og kostar 20.900 krónur.
Þessi svala klukka setur skemmtilega svip á hvaða vegg sem er. Hún kemur úr Epal og kostar 26.000 krónur.
Bakki úr endurunnu járni. Hann kostar 9.900 krónur í Fakó. Á þennan er flott að raða kertum og öðrum smáhlutum.
Fallegt púðaver úr smiðju Sveinbjargar. Það fæst. m.a. í Epal og Dúku og kostar 6.700 krónur.
Gólfmotta gefur látlausu rými kósý yfirbragð. Þessi flotta motta fæst í Fakó og kostar 5.900 krónur.
Hlýtt teppi í sófann er ómissandi. Þetta kemur úr Heimahúsinu og kostar 18.900 krónur.
Ilmkerti setja punktinn yfir i-ið. Þetta fallega ilmkert fæst í Hrím fyrir 2.990 krónur.
Bleikir trékubbar með bókstöfum frá Designletters. Þeir fást í Hrím og kosta 7990 krónur. Hressa t.d. upp á hilluna og sófaborðið.
Grænar plöntur eru vinsælar um þessar mundir. Þessar gerviplöntur fást í Ikea.
Kertalukt úr Fakó, kostar 7.900 krónur.