Fasteignavefurinn StreetEasy birti nýverið myndir og upplýsingar um hús söngkonunnar Taylor swift sem hún keypti árið 2014. Swift hefur hingað til verið dugleg að birta myndir á Instagram sem teknar eru heima hjá henni en á myndum SteetEasy má sjá eignina nánar.
Swift borgaði tæpa 2,7 milljarða fyrir 750 fermetra húsið sem er í Tribeca í New York.
Húsið hefur að geyma níu svefnherbergi, níu baðherbergi og glæsilegt fullbúið eldhús svo eitthvað sé nefnt. Húsið er rúmgott og notalega innréttað enda er Swift dugleg að taka á móti gestum. Lili Aldridge, Gigi Hadid, Karlie Kloss og fleiri eru fastagestir heima hjá söngkonunni.