Pínulítil íbúð fær nýtt líf

Hér er plássið ákaflega vel nýtt.
Hér er plássið ákaflega vel nýtt. Ljósmynd/Sam Siew Shien

Ef það er eitthvað sem kveikir í þeirri sem hér skrifar þá eru það góðar hugmyndir, litir, form og hvernig pláss er nýtt á sem bestan hátt. Í þessari pínulitlu íbúð sem er staðsett í Taipei í Taiwan hefur kærustupar hreiðrað um sig. 

Þar sem íbúðin er langt frá því að vera 500 fm að stærð þurfti að hugsa út í hvert smáatriði. Í íbúðinni er svefnloft og er það staðsett yfir baðherbergi og gangi. Eldhúsið er ekki stórt og er plássið undir stiganum nýtt sem eldhússkápar. 

Parið fékk hönnunarstofuna KC Design Studio til að hanna íbúðina og koma með hugmyndir hvernig mætti nýta plássið sem best. Í stofunni er heill skápaveggur sem nýtist vel fyrir allskonar dótarí sem safnast upp á heimilum. Skáphurðirnar eru smart og setja svip sinn á íbúðina.

Í íbúðinni þarf líka pláss fyrir öll leikföngin en parið sem býr í íbúðinni eru bæði hönnuðir og safna leikföngum í frístundum. Þeim tekst einhvern veginn að koma dótinu fyrir án þess að fólk hafi á tilfinningunni að það sé að ganga inn í risastórt barnaherbergi. 

Stofan er einföld en samt svo smart. Sjö speglar á …
Stofan er einföld en samt svo smart. Sjö speglar á veggnum búa til góða stemningu. Ljósmynd/Sam Siew Shien
Klæðningin á veggnum í stofunni er forvitnileg.
Klæðningin á veggnum í stofunni er forvitnileg. Ljósmynd/Sam Siew Shien
Skápaklæðningin á veggnum er ótrúlega vel heppnuð.
Skápaklæðningin á veggnum er ótrúlega vel heppnuð. Ljósmynd/Sam Siew Shien
Hér sést glitta í flísarnar á baðherberginu og horft er …
Hér sést glitta í flísarnar á baðherberginu og horft er fram á gang. Hér er hver fermeter nýttur. Ljósmynd/Sam Siew Shien
Hér sést vel hversu vel plássið er nýtt. Hér sést …
Hér sést vel hversu vel plássið er nýtt. Hér sést eldhúskrókurinn. Ljósmynd/Sam Siew Shien
Horft niður í stofuna.
Horft niður í stofuna. Ljósmynd/Sam Siew Shien
Í íbúðinni er svefnloft.
Í íbúðinni er svefnloft. Ljósmynd/Sam Siew Shien
Horft upp á svefnloftið.
Horft upp á svefnloftið. Ljósmynd/Sam Siew Shien
Baðherbergið er ekki stórt en smekklegt.
Baðherbergið er ekki stórt en smekklegt. Ljósmynd/Sam Siew Shien
Horft inn ganginn.
Horft inn ganginn. Ljósmynd/Sam Siew Shien
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál