Tónlistamaðurinn Prince bjó eitt sinn í þessu glæsihúsi á Spáni. Húsið er til sölu og ásett verð er 728 milljónir króna.
Húsið, sem er heilir 700 fermetrar, hefur verið á markaðinum í tvö ár og ekkert hefur gengið að selja það. Húsið keypti Prince árið 1998 sem brúðkaupsgjöf fyrir þáverandi konu sína, Mayte Garcia.
Húsið hefur að geyma sex svefnherbergi, sundlaug, frábært útsýni, tennisvöll og fullkomið öryggiskerfi svo fátt eitt sé nefnt. Þetta kemur fram á Elle Decor, þar er svo hægt að skoða fleiri myndir.