Söngkonan Pink hefur sett stórhýsi sitt á sölu, en líkt og stórstjörnum sæmir er eignin hin glæsilegasta.
Í húsinu, sem staðsett er í Malibu, er að finna sex svefnherbergi og jafnmörg baðherbergi. Þá fylgir eigninni að sjálfsögðu sundlaug, sundlaugaskýli, falleg verönd og gestahús.
Fleiri myndir má sjá á vef Mirror.