Leikarahjónin Angelina Jolie og Brad Pitt festu kaup á nýju glæsihýsi á dögunum, en húsið er í spænska bænum Andratx. Að sögn féll Pitt fyrir bænum eftir að hafa dvalist á svæðinu við tökur.
Húsið, sem kostaði tæpar 477 milljónir íslenskra króna, er 900 fermetrar að flatarmáli en þar er að finna níu svefnherbergi og sundlaug. Úr stofunni má síðan horfa út á Miðjarðarhaf.