Raunveruleikastjarnan Kylie Jenner hefur sett glæsihýsi sitt á sölu, en húsið er verðlagt á 3,9 milljónir Bandaríkjadala sem samsvarar rúmum 478 milljónum íslenskra króna.
Húsið er ekkert slor, en ungstirnið ákvað þó nýlega að stækka við sig. Hún festi því kaup á glæsihýsi sem staðsett er í sama hverfi og móðir hennar og systur búa í.
Í gamla húsinu er að finna fimm svefnherbergi, sex baðherbergi og að sjálfsögðu er sundlaug í garðinum.
Fleiri myndir má sjá á vef Daily Mail.