Hjónin John Krasinski og Emily Blunt seldu nýverið húsið sitt í Hollywood Hills til fyrirsætunnar Kendall Jenner og fluttu til New York í sæta íbúð í Park Slope-hverfinu. Íbúðin er 370 fermetrar og hefur að geyma sex svefnherbergi.
Íbúðin mun hafa kostað upphæð sem nemur um 688 milljónum króna. Húsið sem íbúðin er í var byggt 1909 en hjónin létu taka allt í gegn og framkvæmdirnar kostuðu um 34 milljónir króna samkvæmt upplýsingum af fatseignavef Street Easy.