10 leiðir til að lækka matarreikninginn

Með góðu skipulagi við innkaupin og eldamennskuna er hægt að …
Með góðu skipulagi við innkaupin og eldamennskuna er hægt að spara aurinn. mbl.is

Sunnudagur til sælu eru svo sannarlega orð að sönnu. Enda fátt betra en að leyfa sér einn dag til þess að slaka á eftir annasama viku. Sunnudagarnir eru einnig kjörnir til þess að setjast aðeins yfir skipulag heimilisins á meðan maður sötrar kaffi undir teppi. Setja upp matseðil með fjölskyldunni og þess háttar. 

Matarkostnaður er eitthvað sem flestir velta fyrir sér og vilja hafa yfirsýn yfir þó svo að það geti stundum reynst erfitt. Á heimasíðunni www.heilsumamman.com má finna nokkur frábær ráð til þess að lækka matarreikninginn án þess þó að skerða gæði og hollustu.

Frosið grænmeti er yfirleitt ódýrara
Lífrænt er auðvitað best en það er betra að fá grænmeti en ekkert grænmeti. Frosnir ávextir og grænmeti er yfirleitt tínt og pakkað í uppskerunni og er því nokkuð „ferskt“ miðað við ávexti sem eru t.d. nokkurra vikna gamlir.

Einfalt
Það þarf ekki að nota tíu tegundir til þess að gera holla máltíð. Það er til dæmis mjög gott að elda einfalda rétti sem innhalda aðeins þrjú til fimm hráefni. Um helgar og spari er hægt að dúlla sér og gæla endalaust við bragðlaukana.

Eldum 1 sinni en borðum oftar  
Ef þú gerir pestó, gerðu þá tvær krukkur, ef þú gerir múslí gerðu stóran skammt sem endist ekki bara tvisvar í morgunmat. Sjóddu heilan pakka af hýðishrísgrjónum eða kínóa og þú átt hráefni alla vikuna sem þú getur notað á mismunandi hátt. Morgungrautur, hádegissalat, steikt grjón með grænmeti og eggjum í kvöldmat.  Einnig hægt að bæta því í pönnukökur eða súpur.

Ekki elda mat sem þér eða fjölskyldunni finnst vondur
Þá borða allir lítið, vilja snarl á eftir og afgangurinn endar í ruslinu.

Ekki henda mat
Allur afgangur ætti að fara í box inn í ísskáp eða beint í frystinn. Það er alveg magnað hvernig hægt er að gera heila máltíð úr alls konar afgöngum. Smá skvetta af kókosmjólk getur til dæmis farið í næsta „smoothie“. Nokkrir bitar af kjöti geta breytt næstu grænmetissúpu í  kjötsúpu. Örlítill afgangur af salati nokkra daga röð verður að þessu fína hádegissalati fyrir einn. Smá skvettu af djús eða safa má frysta og nota sem ísmola og bragðbæta næsta „smoothie“.

Gera sjálfur hlutina frekar en að kaupa tilbúið 
Það er mjög auðvelt að búa sjálfur til túnfisksalat, hummus, pestó, tortillur, próteinbari, tómatsósu, Bbq-sósu, marineringu og fleira.

Bökum
Bakaðu þín eigin súpubrauð, tortillur, muffins, bollur og svo framvegis. Það þarf ekki að vera flókið eða tímafrekt. Það er yfirleitt miklu, miklu ódýrara að baka sjálfur en að kaupa tilbúið. Eini gallinn er sá að þetta heimatilbúna er oftast svo gott að heimilisfólkið borðar miklu meira af því heldur en af keyptu bakkelsi.

Skipuleggjum vikuna
Skipuleggðu máltíðir dagsins og gerðu innkaupalista. Kauptu bara það sem þú ætlar að nota. Best er að setja upp vikuplan í Excel og einfaldast er í raun að gera plan fyrir mánuðinn, eins og er gert í skólum, leikskólum og fyrirtækjum.

Takmörkum ferðir í búðina
Það er alltaf hægt að finna eitthvað sniðugt í hverri búðarferð. Mér finnst þægilegast að fara að versla 2x í viku, á mánudögum og svo á föstudögum en það þarf hver að finna út hvað hentar best.

Hættum að borða eftir kvöldmat 
Það er hægt að spara heilmikið á því fyrir utan að það er góð leið til að losa sig við aukakíló.

Bakaðu heima um helgar frekar en að kaupa tilbúið bakkelsi.
Bakaðu heima um helgar frekar en að kaupa tilbúið bakkelsi. Ásdís Ásgeirsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál