Leikkonan og heilsudrottningin Jane Fonda hefur sett glæsihýsi sitt í Beverly Hills á sölu. Kaupverðið er 13 milljónir dollara, sem samsvarar einum og hálfum milljarði íslenskra króna.
Húsið, sem er hið glæsilegasta, hefur að geyma fjögur svefnherbergi en sér baðherbergi eru inn af öllum herbergjum.
Hjónaherbergið er þó íburðarmeira, en inn af því er ekki einungis að finna fataherbergi, heldur tvö baðherbergi eins og fram kemur í frétt Mirror.