Íbúð Christian Grey úr myndinni 50 Shades Darker er búin fínustu húsgögnum sem hægt er að hugsa sér. Minotti-sófar prýða íbúðina en þeir eru seldir hérlendis í Módern. Þessir sófar heita Seymour og hafa notið mikilla vinsælda. Í myndinni eru líka borðstofustólar frá Minotti sem heita Aston og eru ljósin yfir borðstofuborðinu einnig fáanleg hérlendis en þau eru frá Nema og heita Crown.
Um er að ræða þakíbúð sem er staðsett í Seattle í Bandaríkjunum. Mikið var lagt upp úr því að gera íbúðina sem glæsilegasta og var ekkert til sparað eins og sést í innlitinu hér fyrir neðan.
HÉR getur þú skoðað íbúðina á mjög nákvæman hátt.