Söngvarinn Tom Jones hefur sett heimili sitt í Beverly Hills á sölu. Húsið sjálft er stórglæsilegt en það eru samt innanstokksmunir sem stela athyglinni.
Í öllum herbergjum má finna hluti með hlébarðamynstri hvort sem það eru handklæði, mottur, myndir eða sófasett. Jones virðist einnig vera hrifin af dýrum almennt og eru dýrastyttur áberandi. Mirror greinir frá því að húsið sé falt fyrir 900 milljónir.
Tom Jones á áhugaverða hluti.
skjáskot/Mirror
Sófasettið er með hlébarðamynstri.
skjáskot/Mirror
Hlébarðamynstrið er á baðmottum og handklæðum.
skjáskot/Mirror
Það leynist ýmislegt í þessari stofu.
skjáskot/Mirror
Borðstofustólarnir eru auðvitað með hlébarðamynstri.
skjáskot/Mirror
Í eldhúsinu er ekki mikið um hlébarðamynstur en sessurnar á eldhússtólunum eru þó með fallegu mynstri.
skjáskot/Mirror
Ekki amalegt að eiga svona garð.
skjáskot/Mirror