Hús sem rapparinn sálugi, Tupac, átti, er nú til sölu í Los Angeles fyrir tæplega 300 milljónir íslenskra króna. Á fasteignarsíðunni stendur að þessi eign sé draumur hvers skemmtikrafts.
Tupac bjó í húsinu árið 1995 með unnustu sinni, Kidada Jones, en í húsinu eru sex svefnherbergi og fjögur baðherbergi.
Samkvæmt núverandi eiganda hússins hefur húsinu lítið verið breytt síðan Tupac bjó þar og segir hann húsið innihalda marga minjagripi frá Tupac nú 20 árum seinna.
Hér eru myndir frá húsi frægasta rappara heims.