Tónlistarfólkið Beyoncé og Jay-Z er sögð búin að finna draumahúsið í Kaliforníu eftir að hafa látið leiguhús á fjórar milljónir á mánuði duga upp á síðkastið. En hjónin bjóða tæpan níu og hálfan milljarð í húsið samkvæmd AD.
Átta svefnherbergi eru í húsinu auk ellefu baðherbergja. Fullkominn bíósalur er einnig í húsinu, fjórar sundlaugar, körfuboltavöllur og þyrlupallur.
Samningurinn er ekki enn genginn í gegn og búa því hjónin ásamt börnum sínum þremur enn í leiguhúsi. Þau hafa átt erfitt með að finna nógu stórt hús í Los Angeles á góðu verði en þau hafa verið tengd við nokkrar eignir síðustu ár en ekkert hefur gengið upp. Nú er bara sjá hvort að þessi sala fari í gegn.