Fyrirsætan og raunveruleikastjarnan Kendall Jenner hefur sett stórt þriggja hæða einbýlishús sitt í Hollywood á sölu en ekki er nema rúmt ár síðan hin 21 árs gamla Jenner keypti húsið.
Í júní í fyrra keypti Jenner þetta stórglæsilega hús af leikarahjónunum Emily Blunt og John Krasinski á sex og hálfa milljón dollara en á gengi dagsins í dag eru það tæpar 900 milljónir íslenskra króna.
Samkvæmt TMZ var Kris Jenner, móðir fyrirsætunnar, ekki sátt við kaupin á sínum tíma þar sem húsið er meðal annars í opnu hverfi. En algengt er að ríka og fræga fólkið búi í læstum hverfum. Eins og margar mæður vita þá hafa mömmur alltaf rétt fyrir sér en á þessu eina ári sem Jenner hefur búið í húsinu hefur hún lent í tveimur óhöppum. Annarsvegar var eltihrellir fyrirsætunnar handtekinn á lóðinni og í mars var stolið rándýrum skartgripum úr húsinu.