Ólafur Jóhann Ólafsson rithöfundur býr í glæsilegri íbúð rétt við Central Park í New York. New York Times heimsótti Ólaf Jóhann og eiginkonu hans, Önnu Ólafsdóttur, á heimili þeirra. Blaðið bað Ólaf Jóhann að nefna hluti sem honum þætti vænt um. Hann nefnir íslensk listaverk og tiltekur Kristján Davíðsson, Jón Engilberts og Georg Guðna svo einhverjir séu nefndir.
Í viðtalinu kemur líka fram að eldhúsið sé í miklu uppáhaldi en eini gallinn við það sé að það sé á fyrstu hæð hússins og sú hæð sé jafnframt sú dimmasta. Í íbúðinni eru þaksvalir sem fjölskyldan notar allan ársins hring en Ólafur Jóhann grillar allan ársins hring.
HÉR er hægt að lesa greinina í heild.
Bók Ólafs Jóhanns, Sakramentið, kom út á dögunum hjá Bjarti. Af því tilefni bauð hann í teiti í Reykjavík.