Þegar aðventan nálgast og skreyta skal heimilin getur verið gott að fletta fallegum húsbúnaðarblöðum eða ferðast aðeins um alnetið eftir innblæstri.
Niki Brantmark heimilisbloggari sem heldur úti heimasíðunni www.myscandinavianhome.com tók saman dásamlegar myndir af jólalegum heimilum, skreytingum, dagatölum og fleiru.
Brantmark á rætur að rekja til London og býr í Svíþjóð en uppáhaldsheimilisstíllinn hennar er sá danski enda einstaklega fagur.
Svarti liturinn er áberandi þessi jólin.
Ljósmynd/www.myscandinavianhome.com
Falleg hugmynd af jóladagatali.
Ljósmynd/www.myscandinavianhome.com
Einstaklega smekklegt veisluborð.
Ljósmynd/www.myscandinavianhome.com
Hér er búið að nostra við hvert smáatriði.
Ljósmyndari/www.myscandinavianhome.com
Það kemur vel út að setja jólatréið í körfu.
Ljósmynd/www.myscandinavianhome.com
Stílhreint rými með jólalegu yfirbragði.
Ljósmynd/www.myscandinavianhome.com