Tinna Brá Baldvinsdóttir, eigandi hönnunarverslunarinnar Hríms, er búin að skreyta heima hjá sér. Við fengum að kíkja í heimsókn til hennar og sjá allt fína jólaskrautið sem prýðir heimilið.
Hvenær byrjar þú að skreyta?
„Ég er yfirleitt á síðustu stundu, ég geri þetta fyrsta sunnudag í aðventu og stundum seinna.“
Hvaðan kemur jólaskrautið þitt?
„Flestallt kemur úr Hrími eða frá Bandaríkjunum.“
Áttu þér eitthvert uppáhaldsjólaskraut?
„Hríms-trén mín eru alltaf uppáhalds. Ég hannaði þau ásamt vinkonu minni þegar við opnuðum Hrím.“
Dregur þú fram eitthvert jólastell eða sérstaka jóladúka í desember?
„Ég er með laufabrauðslöberinn frá Hugrúnu á borðinu
og viskustykki í stíl. Ég elska laufabrauðshefðina.“
Ertu með lifandi jólatré eða gervitré?
„Ég hef verið með lifandi tré síðustu ár, það er svo gaman að sækja tré snemma í desember.“
Skreytir þú húsið að utan?
„Ég hef lítið skreytt að utan hingað til en núna er ég komin í stórt hús og verð nú að skreyta aðeins meira en vanalega.“
Er einhver sérstök jólahefð á þínu heimili þegar kemur að jólaskreytingum?
„Já, sokkurinn undir jólakortin er ein af þeim og við skreytum svo tréð saman.“