Anna Marín segist byrja að finna fyrir jólaandanum strax í september en að hún reyni eftir bestu getu að halda aftur af sér til 1. nóvember.
„Þá skreyti ég herbergið mitt hátt og lágt og byrja að hlusta á jólalög.“ Aðspurð hvenær þessi mikli jólaáhugi hafi upphafist segist hún ekki muna eftir sér öðruvísi en mjög áhugasamri um jólin og jólahaldið. En hvað er það sem er svona sérstakt við jólin að mati Önnu. „Ég elska bara allt við jólin, ég elska að baka, elska að hlusta á jólatónlist og bara alla kósí stemninguna sem fylgir þeim og undirbúningi þeirra.“ Það sem gleður Önnu Marín þó hvað allra mest er að sjá andlit þeirra sem hún færir kökur fyrir jólin ljóma en Anna bakar smákökur og setur í box og krukkur og færir sínum nánustu í aðventunni.
„Ég er dugleg að finna uppskriftir á netinu sem mér líst vel á og þýði þær yfir á íslensku. Ég fann til dæmis eina æðislega í fyrra af kökum sem kallast snjóboltakökur, sem ég ætla einmitt að gera aftur núna í ár.“
Spurð um uppáhaldssmákökur sínar segir hún þær vera vanillukökur með súkkulaðidropum í miðjunni vegna þess að þær minni hana á bernskuna.
Spurð um skoðun foreldra sinna á þessu snemmbúna jólaæði skellir hún upp úr. „Sko, þeim finnst þetta bara fínt svo lengi sem ég skreyti bara herbergið mitt til að byrja með og hlusta á jólalögin með heyrnatólum. Svo fæ ég að hjálpa til við að skreyta íbúðina þegar nær dregur jólum.“
Anna Marín elskar ekkert síður að gefa jólagjafir og segist leggja upp úr því að gefa fleiri og minni gjafir frekar en færri og stærri.
En hvers óskar Anna Marín sér sjálf undir tréð þessi jólin?
„Mig dreymir um ljósbláa Kitchenaid-hrærivél til þess að geta bakað og náttföt.“ Eitthvað að lokum? „Bara gleðileg jól,“ segir þessi heillandi jólastelpa.
Snjóboltakökur
25 g kakó
1½ og tsk. lyftiduft
¼ tsk. salt
170 g brætt súkkulaði
200 g brúnn sykur
100 g smjör við stofuhita
2 egg
2 dl flórsykur
Uppskriftin gefur um 30 kökur.
Byrjið á því að setja hveiti, kakó, lyftiduft og salt saman í skál, hrærið saman og setjið til hliðar. Því næst er súkkulaðið brætt yfir vatnsbaði eða í örbylgjuofni og látið kólna. Þeytið því næst brúnan sykur og smjör í annarri skál þar til blandan er létt og ljós. Bætið eggjunum við blönduna einu í einu. Hellið því næst súkkulaðinu út í blönduna og hrærið vel. Hellið að lokum þurrefnunum saman við og passið að hræra ekki of hratt. Setjið plastfilmu yfir deigið og látið kólna í ísskáp í að minnsta kosti klukkustund.
Takið 1 matskeið af deiginu og rúllið því í kúlu og veltið svo kúlunum í flórsykri og setjið þær á plötu. Hafið smjörpappír undir. Hafið allavega 2 cm á milli kaknanna og setjið þær í ofninn á 180°C og í bakið í 12 mínútur.