Bakaðar paprikur með grænmeti og kúskús

Fylltar paprikur.
Fylltar paprikur. Ljósmynd/Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Fylltar paprikur eru ákaflega sniðugur matur sem er bráðhollur. Svo má ekki gleyma því að það er hægt að leika sér endalaust með fyllingarnar. Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir gefur dásamlega uppskrift sem klikkar ekki.

2 rauðar paprikur. Ýmist skornar í tvennt og stilkurinn látinn halda sér eða bara lokið skorið af. Mikilvægt að fræin séu fjarlægð.
1/2 kúrbítur, skorinn í litla bita
6 - 8 kirsuberjatómatar, skornir í litla bita
1/2 græn paprika, fræhreinsuð og skorin í litla bita
4 - 5 sveppir, skornir í litla bita
1 tsk karrý
1 - 2 msk ólífuolía
80 - 100 g fetaostur
100 g kúskús

Rifinn ostur, hér um bil 1 msk yfir hverja papriku
Salt og nýmalaður pipar
1 - 2 msk fersk krydd t.d. graslaukur, basilíka eða rósmarín.
 
Það er um að gera að nota það grænmeti sem þið eigið inni í ísskáp, það er hægt að nota hvaða grænmeti sem er. Um að gera að prufa sig áfram.

Hitið ofninn í 200°C. Skolið allt grænmeti vel og fræhreinsið. Sjóðið kúskús samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum. Blandið  grænmetinu, fetaostinum og kúskúsinu saman í skál, kryddið vel með karrý, salti og pipar. Deilið grænmetisblöndunni jafnt niður á paprikurnar. Stráið rifnum osti yfir og dreypið olíunni líka yfir þær. Inn í ofn í 25 - 30 mín. við 200°C.
 
Þegar paprikurnar eru komnar út úr ofninum er gott að saxa ferskar kryddjurtir og strá yfir.

Það er hægt að bera paprikurnar fram sem forrétt, aðalrétt eða bara sem meðlæti.

Mjög sniðugt að bæta t.d. kjúkling eða hakki við, tilvalið að nota afganga í þennan rétt.

HÉR er hægt að sjá fleiri uppskriftir úr smiðju Evu Laufeyjar.

Fylltar paprikur.
Fylltar paprikur. Ljósmynd/Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Gómsætar fylltar paprikur.
Gómsætar fylltar paprikur. Ljósmynd/Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert