Heilsu-trufflur með kakósmjöri

Heilsumamman Oddrún deilir hér uppskrift að dásamlegum heilsu-trufflum.
Heilsumamman Oddrún deilir hér uppskrift að dásamlegum heilsu-trufflum. Ljósmynd/Oddrún

„Ég er orðin frekar leið á hnetukúlum í öllum útgáfum, þær eru alveg góðar en ég hef bara gert þær aðeins of oft. Um daginn langaði mig í eitthvað gott … eins og svo oft áður en þar sem við vorum í bústaðnum var ekkert mikið af hráefnum til að velja úr. Þar kviknaði þessi hugmynd sem sló í gegn og hefur verið gerð nokkrum sinnum síðan. Hráefnið er það sama og í „gömlu“ kúlunum en aðferðin er önnur, sem tekur kúlurnar upp á næsta level,“ segir Oddrún Helga Símonardóttir sem bloggar undir nafninu Heilsumamman

Hráefni: 

  • 1 bolli döðlur
  • 1/3 bolli kakó
  • 2-3 msk kakósmjör (brætt)
  • 1 tsk vanilludropar eða 0,5 tsk vanilluduft
  • 0,5 tsk himalajasalt
  • 1 bolli grófsaxaðar hnetur að eigin vali (má setja hvað sem er, svo sem kókosflögur eða rúsínur)

Aðferð: 

  1. Leggið döðlurnar í bleyti í smástund, hellið vatninu af og maukið með töfrasprota.
  2. Bræðið kakósmjörið við mjög lítinn hita eða yfir vatnsbaði og bætið saman við döðlumaukið.
  3. Bætið kakói, salti og vanillu saman við og blandið vel saman.
  4. Blandið hnetunum saman við.
  5. Mótið litlar kúlur (þið gætuð þurft að stinga deiginu inn í ísskáp í smástund ef það er of lint).
  6. Veltið kúlunum upp úr kakói og kælið.

Í þessari uppskrift er kakósmjörið algert möst, því það breytir döðlumassanum í súkkulaðimassa!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert