Berglind Guðmundsdóttir matarbloggari á Gulur, rauður, grænn og salt gerði lax með engifer- og hvítlauksmarineringu sem sló algerlega í gegn. Uppskriftin er fyrir fjóra.
1 laxaflak (um 800 g)
5 msk hlynsíróp
70 ml vatn
1 msk engifer, rifinn
2 hvítlauksrif, pressuð
1 tsk rauðar piparflögur
Aðferð:
- Setjið síróp, vatn, engifer, hvítlauk og piparflögur saman í pott og hitið þar til þetta hefur blandast vel saman. Kælið lítillega.
- Setjið laxinn í ofnfast mót og hellið marineringunni yfir.
- Eldið í ofni við 200°c í 12-14 mín.
- Berið fram með fetaostskartöflumús og góðu salati.
Fetaostskartöflumús
500 g kartöflur
180 g smjör
1/2 tsk salt
mjólk eftir þörfum
100 g fetaostur
1 grilluð paprika, skorin í bita
Aðferð:
- Skrælið kartöflurnar og sjóðið í söltu vatni í 20 mín. eða þar til þær eru soðnar í gegn.
- Stappið þær og bætið smjöri og salti saman við. Smakkað til með mjólk þar til kartöflumúsin hefur náð æskilegri áferð.
- Blandið fetaosti og grillaðri papriku saman við.