Taí-kjúklingapítsa með sataysósu

Taípítsa.
Taípítsa. Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir

Berglind Guðmundsdóttir matarbloggari á Gulur, rauður, grænn og salt matbjó taílenska pítsu með kjúlingi á dögunum.

Sataysósa

1 msk. sesamolía
3 msk. sojasósa
1 1/2 tsk. ólífuolía
1 1/2 tsk. vatn
2 1/2 tsk. hrísgrjónaedik
1 1/2 msk. sérrí (má sleppa og nota edik eða vatn)
1 1/2 tsk. púðusykur
1/2 tsk. engifer, fínrifið
1/2 tsk. chillimauk
60 g hnetusmjör

Pítsan

4 naanbrauð
2 kjúklingabringur, eldaðar og skornar í litla bita
1 rauð paprika, skorin í þunnar sneiðar
1-2 rauðlaukur, skorinn í þunnar sneiðar
mozzarellaostur, rifinn
1 búnt kóríander, saxað
salthnetur, saxaðar

Aðferð:

  1. Látið öll hráefnin fyrir sósuna í matvinnsluvél og blandið vel saman.
  2. Deilið sósunni niður á naanbrauðin. Látið kjúklinginn, grænmetið og síðan ostinn yfir allt.
  3. Setjið pítsurnar inn í 210°c heitan ofn, enn betra ef þið eigið pítsaofn, þar til naanbrauðin eru orðin gyllt og osturinn hefur bráðnað.
  4. Takið pítsuna úr ofninum og leyfið að kólna lítillega áður en þið stráið kóríander og salthnetum yfir hana. Berið fram og njótið vel.
Pítsa með satay-sósu.
Pítsa með satay-sósu. Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert