Lambakjöt og þá ekki síst grillað er mjög algengt í gríska eldhúsinu.Hér marinerum við kótilettur upp úr kryddlegi með fersku dilli (það er líka hægt að nota þurrkað) og hvítlauk. Gríska jógúrtsósan Tzatziki er auðvitað á sínum stað og hér bragðbætt með dilli.
Marinering
Blandið öllu saman. Veltið kótilettunum upp úr og látið standa í 1-2 klukkustundir. Grillið eða eldið í ofni og berið fram með Dill Tzatziki og bökuðum kartöflubitum, t.d. grískum sítrónukartöflum.
Dill-Tzatziki
Flysjið agúrkuna, skerið í tvennt og skafið fræin innan úr með skeið. Fínsaxið eða rífið niður á grófu rifjárni. Saxið dillið og pressið hvítlaukinn.
Blandið öllu saman við jógúrtið í skál. Bragðið til með salti og pipar. Geymið í ísskáp í um 2 klukkustundir áður en bera á fram.
Grísku vínin eru sjaldséð hér en gott Miðjarðarhafsvín frá Frakklandi á borð við Tautavel frá George Bertrand smellpassar með.
Fleiri uppskriftir undir grískum áhrifum má finna með því að smella hér
Uppskrift: vinotek.is