Hildigunnur bloggar: Marsipankaka með vínberjum

Bakaði einu sinni sem oftar fyrir föstudagskaffið í Listaháskólanum. Í þetta skiptið varð gamall standard hjá okkur fyrir valinu. Reyndar bakar bóndinn þessa oftar en ég.

Einföld og fljótleg en afskaplega góð.

200 g gott marsípan
75 g brætt smjör
2 egg
75 g hveiti
1/2 tsk. lyftiduft
200 g vínber (steinlaus eða steinhreinsuð)

Skerið marsípan í sneiðar og hrærið svo bræddu smjörinu saman við uns mjúkt. Hrærið eggin saman við og síðan hveiti og lyftiduft. Hellið hrærunni í tertu- eða bökuform (22-24 cm). Skerið vínberin í tvennt og dreifið þeim yfir. Bakið kökuna í 18-20 mínútur við 200°C. Gjarnan má strá flórsykri yfir kökuna áður en hún er borin fram.

Kakan er góð hvort heldur sem er heit eða köld. Ekki sakar svo að bera fram þeyttan rjóma eða ís með henni.

Myndina tók Albert Eiríksson og er hún birt hér með góðfúslegu leyfi.

Uppskrift: vinotek.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert