Kanilís með Nóa kroppi og karamellu-Pipp

Girnilegur kanilís með Nóa kroppi og karamellu-Pippi.
Girnilegur kanilís með Nóa kroppi og karamellu-Pippi.

Thelma Þorbergsdóttir útbjó kanilís með Nóa kroppi og karamellu-Pippi á dögunum og er uppskriftin hér fyrir neðan.  

6 egg

6 msk. sykur

150 g dökkur púðursykur

7 dl rjómi, þeyttur

200 g Konsum-súkkulaði

Fræ úr einni vanillustöng (má sleppa)

1 tsk. vanilludropar

1 tsk. kanill

Toppur: 1 poki Nóa kropp

100 g Karamellu Pipp og 3 msk. rjómi, bráðið

Þeytið eggjarauður og sykur saman þar til blandan verður ljós og létt. Blandið púðursykri varlega saman við með sleif. Þeytið rjómann og blandið honum saman við með sleif og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.

Grófsaxið 100 g súkkulaði og blandið saman við ísblönduna. Blandið því næst fræjum úr einni vanillustöng og vanilludropum saman við. Þeir sem vilja geta síðan þeytt eggjahvíturnar þar til þær verða stífar og blandað þeim saman við ísinn svo það verði meira úr honum eða geymt þær til annarra nota.

Hellið ísblöndunni í hringlaga smelluform, bræðið hin 100 g af súkkulaðinu, hellið yfir ísinn og létthrærið í forminu. Frystið ísinn í lágmark 5 klst. Þegar ísinn er tekinn út er gott að láta hann standa aðeins við stofuhita svo auðvelt sé að ná ískökunni úr forminu. Takið beittan hníf og skerið undir botninn á ísnum og færið yfir á kökudisk.

Skreytið ísinn með Nóa kroppi og bræðið karamellu-Pippið ásamt rjómanum og hellið

yfir. Ísinn geymist vel í rúma 3 mánuði í frysti.

Uppskriftin dugar fyrir 10-12 manns.

Þessi ís á heima á matarhátíð eins og páskunum.
Þessi ís á heima á matarhátíð eins og páskunum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert