Taktu á móti sumrinu með marengs-tertu

Svakaleg marengs-terta.
Svakaleg marengs-terta. Ljósmynd/Dröfn

Dröfn Vilhjálmsdóttir matarbloggari á Eldhússögur úr Kleifarselinu bakaði svakalega marengs-tertu á dögunum.

Marengs:

▪   2 dl sykur
▪   1 dl púðursykur
▪   4 eggjahvítur
▪   3 bollar Rice Krispies

Ofn hitaður í 120 gráður við blástur (ef baka á báða botnana samtímis) eða 130 gráður við undir- og yfirhita. Eggjahvítur, púðursykur og sykur er þeytt þar til marengsinn er orðinn stífur. Þá er Rice Krispies bætt varlega út í marengsinn með sleikju. Diskur eða kökuform sem er um það bil 23 cm í þvermál er lagt á bökunarpappír og strikaður hringur eftir diskinum. Þetta er gert tvisvar. Marengsinum er skipt í tvennt og hann
 settur á sitt hvorn hringinn. Því næst er slétt jafnt úr marengsinum innan hringsins með sleikju eða spaða. Þá er marengsinn bakaður í 120°C (blástur) í heitum ofni í um það bil 60 mínútur. Best er að láta marengsinn kólna í ofninum.

Fazermint marengsterta

Rjómafylling:

▪   5 dl rjómi
▪   250 g fersk jarðarber, skorin í bita
▪   ca. 200 g fersk bláber
▪   8 molar Fazermint (ca. 60 g), saxaðir smátt

Rjóminn er þeyttur og berjunum ásamt Fazermint-molunum er blandað út í rjómann. Rjómablandan er svo sett á milli marengsbotnanna þegar þeir eru orðnir kaldir.

Fazermint krem: 

  • 4 eggjarauður
  • 4 msk. flórsykur
  • 12 molar Fazermint (ca. 90 g)
  • 100 g Toms extra súkkulaði 70%

IMG_4925

Eggjarauður og flórsykur þeytt vel saman. Toms extra-súkkulaðið er brotið niður í skál ásamt Fazermint-molunum og brætt yfir vatnsbaði. Ef súkkulaðiblandan er of þykk er hægt að bæta örlítilli mjólk eða rjóma út í. Eggjarauðu- og flórsykurblöndunni er svo blandað út í súkkulaðið. Kreminu er því næst dreift yfir marengstertuna. Skreytt með berjum, t.d. jarðarberjum, bláberjum, hindberjum, rifsberjum og blæjuberjum. Tertan er geymd í ísskáp og er góð, ef ekki betri, daginn eftir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert