„Þegar ég hugsa um fullkomnun í bakstri hefur hugurinn oft leitað til Melkorku muffins sem færðu mig og aðra sem þær smökkuðu til muffinshimna. Þessar súkkulaðimuffins með rjómaostafyllingu eru nú komnar í sama flokk enda algjörlega ólýsanlega góðar og verða að komast á to do listann þinn,“ segir Berglind Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur og matarbloggari á Gulur, rauður, grænn og salt.
Súkkulaðideig sett í muffinsform.
Rjómaostakrem sett yfir.
Að lokum er rjómaostaglassúr sett ofan á.
…og þeirra notið.
Súkkulaðimuffins með rjómaostafyllingu
ca. 12 stk.
Súkkulaðimuffins
200 g Kornax hveiti
125 g sykur
40 g kakó, t.d. frá Nóa og Síríus
1/2 tsk. natron
½ dl olía
1 ½ tsk. hvítvínsedik
½ tsk. vanilluextract
Rjómaostafylling
150 g rjómaostur
60 g sykur
1 egg
½ tsk. vanilludropar
hnífsoddur salt
100 g Nóa og Síríus súkkulaðidropar
Rjómaostaglassúr
300 g flórsykur
20 g ósaltað smjör
125 g rjómaostur (við stofuhita)
- Gerið súkkulaðimuffins með því að blanda saman hveiti, sykri, kakói og natroni. Í aðra skál hrærið saman olíu, ediki, vanilludropum ásamt 1½ dl af vatni. Hellið því rólega út í hveitiblönduna og þeytið á meðan. Látið í muffinsform og fyllið ca. 2/3 af forminu.
- Þeytið rjómaost, sykur, egg, vanillu og salt saman þar til það er orðið jafnt og loftkennt. Bætið við súkkulaðidropunum varlega með sleif. Setjið um matskeið af ostafyllingunni ofan á kökublönduna og bakið í 170°c heitum ofni í sirka 20 mín. eða þar til ostafyllingin hefur fengið jafnan gullinn lit. Varist að baka þær of lengi því þá verður fyllingin þurr.
- Takið kökurnar út og leyfið þeim kólna smávegis í forminu. Takið svo kökurnar úr formunum og leyfið þeim að kólna alveg.
- Gerið rjómaostaglassúrinn með því að hræra flórsykur og smjör saman. Bætið rjómaosti saman við og hrærið í um 3 mínútur eða þar til blandan er orðin létt og ljós.
- Þegar kökurnar eru orðnar kaldar smyrjið þá rjómaostaglassúrnum á og skreytið með því að sigta smákakó yfir.