Marsípan- og sítrónusnúðar

Snúðar Eldhússystra eru ljúffengir.
Snúðar Eldhússystra eru ljúffengir. Ljósmynd/Eldhússystur

„Miðað við að ég gaf mér og systur minni einhvern tíman viðurnefnið „snúðasystur“ þá hef ég ekki verið sérlega dugleg að prófa nýjar snúðauppskriftir í vetur. Þá sem hér fylgir á eftir prófaði ég um páskana (sem skýrir gulu páskaliljurnar) – semsagt, enn ein uppskrift sem ég hafði ekki alveg tíma til að koma á blað þegar mesti ritgerðarhamangurinn stóð yfir :) Snúðarnir slógu sérstaklega í gegn hjá eiginmanninum sem er mikill aðdándi sítrónubragðs,“ segir á blogginu Eldhússystur en systurnar Tobba og Stína halda því úti.

Deig
25 g ferskt ger/2,5 tsk þurrger
125 g smjör
5 dl mjólk
½ tsk salt
1,25 dl sykur
2 egg
15 dl hveiti

Fylling
300 gr marsípan
150 gr smjör, við stofuhita
Rifinn börkur af einni sítrónu
4 msk sítrónusafi

Egg og möndluspænir

Glassúr
2 dl flórsykur
2 msk sítrónusafi

Aðferð
Bræðið smjörið í potti, hellið mjólkinni undir og hitið að ca. 37°c. Myljið ferska gerið út í mjólkina og leysið upp (ef þið notið þurrger, blandið því þá beint út í hveitið). Bætið salti, sykri og eggi út í vökvann. Bætið hveiti út í vökvann í nokkrum skömmtum og hnoðið vel. Geymið örlítið hveiti þangað til deigið er flatt út. Látið deigið hefa sig í ca. 45 mínútur eða þar til það hefur tvöfaldað sig.

Fyllingin er búin til með því að rífa niður marsípanið og blanda saman við smjörið, sítrónubörkinn og sítrónusafann.

Skiptið deiginu í 2 jafna hluta. Fletjið hvorn hluta út fyrir sig í ferhyrninging og smyrjið fyllingunni á. Rúllið deiginu upp og skerið hvora lengju fyrir sig í ca. 18 bita. Setjið snúðana á ofnplötu klædda með bökunarpappír. Látið snúðana hefa sig í ca. 30 mínútur og stillið ofninn á 250°c.

Sláið í sundur eggið, penslið snúðana með egginu og stráið möndluspæni yfir. Bakið í miðjum ofni í 8 – 10 mínútur.

Blandið saman flórsykri og sítrónusaft. Setjið glassúrinn á snúðana þegar þeir eru orðnir kaldir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert