Stir fry-nautakjöt í chilisósu

Nautakjöt eldað á taílenskan hátt.
Nautakjöt eldað á taílenskan hátt. Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir

Berglind Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur og matarbloggari á Gulur, rauður, grænn og salt hefur dálæti á taílenskum mat. Hér er hún búin að útbúa girnilegan pottrétt sem fær bragðlaukana til að hoppa af kæti.

300-350 g nautakjöt, skorið í strimla
chilikrydd (t.d. chili explosion)
pipar
1 eggjahvíta
1 msk hveiti
1 msk olía
1 rauð paprika, skorin í strimla
4 vorlaukar, skornir langsum
1 brokkólíhaus
handfylli baunaspírur
2 hvítlauksrif, söxuð
2 tsk engifer, smátt saxað

Sósan
3 msk appelsínusafi
1 tsk hvítvínsedik, t.d. frá Blue dragon
2 tsk dökk sojasósa, t.d. dark soy sauce frá Blue dragon
1 tsk chilimauk, t.d. minced chili frá Blue dragon

  1. Gerið sósuna með því að blanda appelsínusafa, hvítvínsediki, sojasósu og chilimauki saman í skál.
  2. Þeytið eggjahvítuna með gaffli þar til hún fer að freyða. Bætið þá kjötinu saman við ásamt chilikryddi, ríflegu magni af pipar og hveiti og þekið kjötið vel með þessari blöndu.
  3. Setjið steikingarolíu á pönnu og hitið vel. Léttsteikið kjötið og bætið því næst grænmetinu saman við. Hellið sósunni saman við og leyfið að hitna. Ef þið viljið getið þið bætt við 3-4 msk af vatni til að þynna sósuna. Berið fram strax með hrísgrjónum.
Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert